GJALDSKRÁ
fyrir Gjaldheimtuna ehf.
A. Almennt.
- Innheimtuþóknun skal taka mið af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem í innheimtu eru.
- Þóknun fyrir önnur lögmannsstörf skal taka mið af gjaldskrá Gjaldheimtunnar ehf. um tímagjald, sem í dag er kr. 16.000,-
- Allar fjárhæðir eru tilgreindar án vsk.
- Til viðbótar þóknun skv. B. skal gerð krafa um greiðslu alls útlagðs kostnaðar á hverjum tíma.
B. Innheimtuþóknanir.
- Meginreglan er að við skráningu innheimtumáls er sent út eitt innheimtubréf með kröfufjárhæð (höfuðstóll og vextir) að viðbættri innheimtuþóknun með 10 daga greiðslufresti. Að þeim fresti loknum skal send út greiðsluáskorun vegna mála með beina heimild til aðfarar/nauðungarsölu en öðrum skal vísað til dómstóla.
- Grunngjald innheimtuþóknunar er kr. 6.000,00 að viðbættu:
| i. |
20% af fyrstu |
kr. |
75.000,00 |
| ii. |
15% af næstu |
kr. |
75.000,00 |
| iii. |
12% af næstu |
kr. |
200.000,00 |
| iv. |
10% af næstu |
kr. |
750.000,00 |
| v. |
5% af næstu |
kr. |
7.500.000,00 |
| vi. |
3% af næstu |
kr. |
50.000.000,00 |
| vii. |
2% af því sem umfram er. |
kr. |
|
- Fyrir innheimtumál sem stefnt hefur verið fyrir héraðsdóm og lýkur án aðalmeðferðar með áritun, sátt eða greiðslu fyrir eða eftir þingfestingu skal grunngjald þóknunar vera kr. 25.000,00 að viðbættu:
| i. |
12% af fyrstu |
kr. |
1.500.000,00 |
| ii. |
10% af næstu |
kr. |
2.000.000,00 |
| iii. |
5% af næstu |
kr. |
9.000.000,00 |
| vii. |
3% af því sem umfram er. |
kr. |
|
Komi til aðalmeðferðar máls skal gerð krafa um þóknun í samræmi við gjaldskrá Gjaldheimtunnar ehf. um tímagjald.
- Þóknun fyrir ritun greiðsluáskorunar, beiðni um aðför, beiðni um nauðungarsölu, kröfulýsingar, afturkallanir, gjaldþrotaskiptabeiðni o.s.frv. er kr. 6.000,00. Þóknun fyrir frestanir án mætingar er kr. 4.000,00.
- Þóknun fyrir mót hjá sýslumanni og héraðsdómi er kr. 6.000,00 í hvert sinn nema þegar um að ræða fyrsta mót vegna krafna sem njóta beinna aðfarar og/eða uppboðsheimilda, kyrrsetningar, lögbanns og löggeymslugerða. Í slíkum tilfellum skal þóknun tengd kröfufjárhæð:
| i. |
kr. 6.000,00 af fyrstu |
kr. |
50.000,00 |
| ii. |
kr. 5.000,00 af næstu |
kr. |
50.000,00 |
| iii. |
0,5% af næstu |
kr. |
500.000,00 |
| vii. |
0,25% af því sem umfram er. |
kr. |
|
C. Uppgjör við kröfuhafa.
- Meginreglan er að skuldari greiðir innheimtukostnað skv. B.
- Reynist innheimta kröfu árangurslaus greiðir kröfuhafi aðeins útlagðan kostnað félagsins nema að komið hafi til aðalmeðferðar fyrir héraðsdómi og/eða Hæstarétti. Í slíkum tilfellum er farið að gjaldskrá Gjaldheimtunnar ehf. um tímagjald og skal kröfuhafa gerð grein fyrir hugsanlegum kostnaði og/eða samið um slíkan kostnað sérstaklega í hvert sinn.
- Allir sérsamningar við kröfuhafa sem veita frávik frá 1-2, skulu vera skriflegir. Hér er átt við heimildir til afturköllunar með afslætti af kostnaði, lágmarkskostnað við fyrsta bréf (milliinnheimtustig), niðurfellingar eftir 1-2 bréf o.s.frv.
- Sé innheimtan fyrir erlendan aðila skal kröfuhafi greiða 5% af kröfufjárhæðinni til viðbótar innheimtuþóknun skv. B.
Gjaldskrá þessi tekur gildi í dag og fellur gjaldskrá frá 21. mars 2006 þá úr gildi.
Reykjavík, 1. október 2008.
f.h. Gjaldheimtunnar ehf.
Davíð B. Gíslason hdl. framkvæmdastjóri